mandag den 6. juni 2011

...kreppa á blóðlager!



Það poppaði upp fyrir skömmu að blóðlagerinn í Sisimiut er víst ekki eins og í búri konungs. Ég var því ekki lengi að sippa mér inn í næstu stofu til þess láta tappa af mér og helst vildi ég að það yrði merkt "Hildur" og fengi að dúsa í kæli einsog nestisbox. Það varð þó fyrst að taka prufur og senda þær til Nuuk, svo ég held mér frá hvellum og látum þar til ég á nokkra poka á lager, þannig er það:)

Mikil sveifla hérna í veðri og miklar loftlagsbreytingar og þetta er víst allt mjög undarlegt og skrítið. Hér snjóaði víst fyrst í janúar að ráði og snjórinn er rétt að fara núna. Búið að vera ótrúlega kalt enda snérum við Gyða bara vörn í sókn og húrruðum okkur í velheppnaðan hundasleðatúr. Það á ég aldeilis eftir að endurtaka og hlakka til að gera það í frosthörku og góðu færi.

Við Gyða skelltum okkur í messu á sunnudaginn því það var verið að ferma hálfan bæinn. Krakkarnir stóðu í röð, skipt eftir kyni og allir í þjóðbúningum og marseruðu svo inn. Svo var löööööng messa og smá lúr þar til fjörið byrjaði. Svo voru þau fermd koll af kolli en í hvert sinn sem einstaklingur var fermdur þá stóð sú fjölskylda upp þar sem hún var í krikjunni á meðan barnið var fermt.


Eftir messuna var okkur Gyðu svo boðið...sem varð að 5 tíma bröns í sól og steik út á palli, miklar brunarústið eftir það tran.

1 kommentar:

  1. Uss hvað þetta hljómar allt rosalega spennandi og skemmtilegt hjá ykkur ævintýra kellur :) Ekkert smá skemmtileg byrjun á nýjum vinnudegi og svo búin að upplifa grænlenska fermingu, bara gaman :)
    Vonandi hafi þið það gott í kuldanum, það er ekkert of gott að sofa hérna í hitanum þannig að það liggur við að ég öfundi ykkur að hafa þennan kulda :)
    Kveðja Auður

    SvarSlet