"Hold øjne med rotationen!"...sögðu grænlensku danirnir við mig skrilljón sinnum áður en ég hélt af stað þegar umræðan barst að "kaffemik". Kaffemik er ekta grænlenskur siður og einskonar kaffiboð. Kaffimik eru haldin þegar einhverju ber að fagna t.a.m. þegar krakki veiðir fyrsta dýrið sitt, klárar skólann, afmæli, fyrsta tönnin, fyrstu skrefin, ferming og allt sem við föngum, heimkoma ástvinar, jarðarför...öll tilefni! Kaffimik eru glæsilegar veislur og eru haldin í nokkra tíma, maður má koma hvenær sem er en það eru reglur í boðinu sem gengur einmitt út á að "hold øjne med rotationen!! Maður kemur inn og byrjar á að fara inní eldhús, þar er yfirleitt matur og maður fær sér á diskinn og klárar hann, síðan heldur maður inní borðstofu þar sem kökurnar eru, þar fær maður sér desert og allra mest tvo kaffibolla. Maður sest svo niður í skamma stund huggar eilítið og fer svo. Þetta er svona eins og íslensk stöðvarþjálfum og þykir argasti dónaskapur að staldra of lengi við á einni stöðinni.
Okkur Gyðu var boðið í fyrsta kaffemikið í dag hjá samstarfskonu minni. Við innkomuna voru leikreglunar útskýrðar þar sem þetta var okkar fyrsta kaffimik auk þess að sá sem heldur veisluna talar ekki við gestina, hann hefur nóg að gera og maður á bara að blanda geði við gestina. Láta veisluhaldaran vera:)
Grís og hreindýr inní eldhúsi, sú stöð gekk glæsilega enda sinnt með fullri einbeytningu og miklu hungri. Þar næst tók kökuborðið við, ossabossa og obbobbobb eiginmaður veisluhaldarans á bakaríið hérna í Sisimiut og kökurnar eftir því....hahaha...já ég veit ekki hvað löngum tíma eftir en veisluhaldarinn þótti við staldra of lengi við á kökurborði og varð að reka okkur í sófann! Obbosí!:D
Jæja, við pössuðum okkur á því að sitja nú ekki of lengi enda fólk að koma allan tíman og því alveg bráðnauðsynlegt að gera pláss fyrir þá sem voru að ljúka við kökurnar.
Á leiðinni heim vorum við Gyða alveg steinhissa á hvað okkur leið vel, ekki afvelta og búnar að éta okkur til óborinnar skammar. "Rotations-hugtakið" kemur alveg hreint í veg fyrir það að maður fái sér aftur á diskinn, og einu sinni enn....og jafnvel í þrjðja skiptið því maður á annars eftir að sjá eftir því þegar maður kemur heim! Við gátum meira að segja borðið kvöldmat tveimur tímum seinna!
Viva la vida Rotation!!
ohh það er svo gaman að lesa um þetta alltsaman elsku hildua! endilega haltu áfram og helst blogga tvisvar á dag ef við getum ekki hist á skype
SvarSletknús og kossar
Halldís
og ég er greinilega fyrsta manneskjan sem get kommentað hjá þér!
SvarSletgaldurinn er að ef maður er með gmail account að kommeta som: Google....
vona að fleiri bætist í hópinn :)
djóóók sé að Auður er búin að kommenta á færsluna hér á undan, sorrý maður!
SvarSlethahahaha vá æðislegt.... kemur alveg í veg fyrir að maður borði yfir sig af kökunum!! Maður þarf að koma þessu inn hérna....
SvarSletknús, Guðný.