søndag den 12. juni 2011

Ganga á Prestfjallið hvítasunnuna 12.júní 2011








Fyrsta sunnudag í mánuði er bröns á Hotel Sisimiut sem hófst einmitt í dag, þar brá fyrir nákvæmlega öllum ÖLLUM sem ég hef kynnst á síðustu tveimur vikum og eru danskir. Skemmtilegt að sjá alla saman komna á einn stað, fólk sem maður hefur  verið að kynnast á höfninni, á sjúkrahúsinu, í matarboði, í búðinni, kaffemik og svo framvegis! Hérna eiga nánast allir sleðahunda og það er reyndar sagt að ef maður vill öðlast tryggð af hálfu grænlendingana þá á maður annað hvort að fá sér bát, snjósleða eða sleðahunda, því eiga flestir eitthvað ef ekki allt af þessu. Eftir brönsinn röltum við Gyða því með einu parinu hérna og fengum að fylgjast með á meðan þau fóðruðu hundana. Allir sleðahundarnir eru í keðjum en hvolparnir fá að leika lausum hala og eru því útum allt. Það er allt í góðu að klappa þeim, en ef maður hnoðast of mikið í þeim elta þeir mann jafnvel í annan hundahóp og þar geta hundarnir gengið frá hvolpunum, svo hvolpaknúsið verður að fá að halda sér á mottunni. Mjög erfitt oft! Þar sem veðrið var svona glimmrandi gott skelltum við okkur upp á Prestafjallið með Christinu sjúkraþjálfari af elliheimilinu. Okkur tókst að sjálfsögðu að rúlla okkur á snarvitlausum stað upp en það hafðist. Mér fannst bara eins og við værum á leið upp Esjuna, lyktin var eins og lyngið var eins. Það er svo einstak og undarlegt að vera á svona framandi slóðum sem á saman tíma finnast maður vera að veltast um í eigin mosa....

Ingen kommentarer:

Send en kommentar