lørdag den 18. juni 2011

DÁSAMLEGUR dagur, bátsferð, veiði, kræklingar, harðfiskur, þorskalifur og þorskamagi! Allt í minn maga:)








Við vorum svo glimmrandi heppnar að yfirlæknirinn og tannlæknirinn voru á leið út að sigla í morgun og okkar var boðið með! Sóttar klukkan 10 og vorum svo komnar á sjó skömmu seinna. Ferðinni var haldið inní 2.fjörð þar sem við ætluðum að renna eilítið fyrir þorski, sigla síðan lengra inní fjörðin og gera svo duglegt stopp á meðan fjara væri þar sem yfirlæknirinn á bústað.  Fiskiríið leit ekki vel út í fyrstu, við Gyða með gallfreðna taktík á meðan tannlæknir halaði inn hverjum þorskinum á fætur öðrum. En síðan rættist úr þessu og við drógum öll okkar hnossgæti uppúr baðkari heimsins! Yndislegt að veiða, ætla að safna mér fyrir bát! Eftir að við komum að hyttu læknisins, var ýmist gert að fisknum, flakað, þryfin lifur eða hrogn, þorskamagi tekin frá eða plokkað krækling í fjörunni. Þetta var eins og að vera í berjamó og maður stökk eins og héri í partýi á milli kræklingaþúfna!! Þegar búið var að gera að öllu tók mikil áthátíð við! Alveg dásamlegt, harðfiskur sem var búin að fá að þurrkast í 2 vikur var tilbúinn og tilbúin til áts. Að borða það sem maður veiðir er ekki til að lýsa, bara upplifa.
Hvað er betra en að koma heim og fara að sofa rjóður í kinnum eftir dásamlegan dag.
Góða nótt...

1 kommentar:

  1. ohhh hljómar svooo vel... líst vel á að þú safnir þér fyrir bát svo þú getir boðið gestum í svona skemmtilega veiðiferð ;)
    knús Guðný.

    SvarSlet