onsdag den 4. maj 2011

...obbobbobb! Maður er þá víst á leiðinni til Grænlands!!

Mublurnar farnar!!

Oll ræt,  sprengilegir norður-jótar gerðu innrás í morgun eins og herflokkur temíta....tveggja manna herflokkur termíta...hrúguðu niður í kassa og báru svo hverja mubbluna á fætur annarri niður í langferðabílinn og brunuðu af stað. Einn þeirra hafðu nú einhverjar áhyggjur yfir því hvað búslóð mín væri fátækleg og mér tækist sennilega ekki að fylla huggulega upp í grænlenska hreiðrið mitt. Ég var þá ekki lengi að húrra enn fleirri borðstofustólum fram í dagsljósið sem ég virðist eiga ógrynni af þessa daga og sagði honum að ég gæti þá í versta falli raðað stólunum endilangt eftir öllum veggjum! Við látum okkur nú sjá:)

Skemmtilegt, spennandi tímar framundan!

Adios

Ingen kommentarer:

Send en kommentar