| Öskuskýjið að nálgast Reykjavík |
Ætti að vera að lenda í Nuuk eftir smá tíma en var þess í stað að koma úr huggulegri heimsókn frá ömmu og örstuttu kíki á Hrönn yfirlandvörð!:) Er byrjuð á kveðjuhring tvö og sé fram á að kveðja alla í það minnsta 5 sinnum í viðbót, svona ef þetta skildi vera síðasta skiptið! Þegar ég sippaði mér út frá ömmu áðan og inní bílinn varð ég vör við það að eitthvað féll á nefið á mér. Gat það verið að það væri að byrja glæsileg ofurvaxið öskufall í Kóparvoginum! Ég rangeygði sjónkúlunum og reyndi að analysera ofankomuna á augabragði, en hún staldraði of stutt við svo að niðurstaða fengist í málið. Ég pírði augun og hóf í óða önn að leyta að svipaðri ofankomu á bílastæðinu í Fannborginni og kom loksins auga á eina flögu sem kom dansandi niður við húsvegginn Það mætti halda að flagan hefði lifnað við því um leið og ég ákvað að negla hana og greina byrjaði hún að þyrlast um allt helvítis fannborgarplanið...og ég á eftir þar til hún lenti á kinninni minni og bráðnaði. Snjókoma var það.
![]() |
| Mynd sem Sigurlaug Linnet tók af gosinu |
Skrítið að vera ekki að fara í dag, pínu eins og maður hafi verið að undirbúa sig fyrir próf í heillangan tíma og svo var prófinu aflýst. Óþægileg þessi óvissa. Gámurinn kemur til Sisimiut á laugardaginn svo ég átti bara að dúsa á patienthotellet fram að því svo það er alveg jafn gott að vera heima með pylsu í einni og malt í annarri. Held að ég boði komu mína í babba á morgun!

Ingen kommentarer:
Send en kommentar